Lokað fyrir umsóknir..en..

Búið er að loka fyrir umsóknir fyrir stuttmyndir en hægt verður að sækja um fyrir íslensk tónlistarmyndbönd til 1. október næstkomandi. Til þess að sækja um þarf aðeins að senda tölvupóst á [email protected] með helstu upplýsingum um myndbandið. Nánari upplýsingar er hægt að finna undir “tónlistarmyndbönd“. Við viljum þakka öllum sem sendu myndir á hátíðina í ár. Okkur hafa borist rúmlega 300 myndir frá yfir 60 löndum sem er met fyrir hátíðina. Forvalsdómnefndin hefur nú þegar hafið störf en öllum þátttakendum mun berast tölvupóstur í byrjun september um val á myndum.

Comments are closed.