FRÁ STUTTMYND Í FULLA LENGD
Hátíðin bíður í fyrsta sinn upp á ókeypis námskeið með Margaret Glover , meðlim dómnefndar, handritshöfund og framleiðanda. Aðeins verður tekið við takmörkuðum hópi þátttakenda en áhugasamir geta skráð sig á [email protected] með upplýsingum um nafn viðkomandi, ferilskrá og loglínu á ensku úr kvikmyndinni sem viðkomandi vinnur að. Umsækendur verða látnir vita í byrjun nóvember.
Dagskrá
Föstudagur 15.nóvember
11.00-12.30
Vinnustofa I hluti: Staðan á fyrstu mynd í fullri lengd.
Um hvað er sagan þín? Hvaða hæfni, innsýn og reynslu hefur þú til að segja þessa sögu? Hvaða auka úrræði þarft þú til að segja söguna þína sem kvikmynd?
12.30-13.30 Hádegishlé
13.30 -15.00 ( Hátíðin hefst kl. 15.00)
Vinnustofa II hluti: Áhorfendur fyrstu myndar þinnar í fullri lengd
Af hverju vilt þú segja söguna þína í kvikmyndaformi? Hverjir munu tengja við söguna þín sem kvikmynd? Hversu mikið er fólk tilbúið til að tengjast sögunni í kvikmynd?
Saturday 16th of November
16- 17.30
Vinnustofa III hluti: Dreifing á fyrstu kvikmynd í fullri lengd
Hvaða sýningarleiðir henta best þinni mynd? Hvers konar kynningarvarning getur þú skapað til að tengjast og stækka áhorfendahóp þinn? Er nauðsýnlegt að framkvæma allt þetta?
Hver vinnustofa er í 90 mínútur og innifelur 30 mínútur fyrir spjall. Hugsjónin á bakvið vinnustofuna er að allt of oft hugsar fólk um að framkvæma án þess að hugsa um í hvaða samhengi hlutirnir eru framkvæmdir og fyrir hverja.





















