Undanfarin ár hefur Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri átt fast sæti í dómnefndinni en Hilmar Örn Hilmarsson, tónskáld, var hluti af dómnefndinni fyrstu þrjú árin . Á hverju ári er einn erlendur eða innlendur gestadómari fenginn til að taka þátt í dómnefndarstörfum og halda fyrirlestur. Meðal þeirra sem setið hafa í dómnefnd eru Mark Berger, hljóðmaður og fjórfaldur óskarsverðlaunahafi, Valdís Óskarsdóttir klippari og leikstjóri, Ragnar Bragason leikstjóri, Árni Ólafur Ásgeirsson leikstjóri, Romain Gavras, leikstjóri og Bertrant Mandigo, leikstjóri.
Dómnefnd Northern Wave 2013:
Silja Hauksdóttir leikstóri (Dís, Ástríður, Stelpurnar), Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri (Á annan veg) og Margaret Glover handritshöfundur.
Í dómnefnd tónlistarmyndbanda eru þeir Benedikt Reynisson sem hefur starfað m.a. fyrir Airwaves, Gogoyoko og hjá útvarpsstöðinni KEXP og Jim Beckmann starfsmaður KEXP.





















