Þá er allt að verða til fyrir hátíðina. Háhyrningarnir eru mættir á svæðið og útlit er fyrir ágætis rigningarveður um helgin.
Hinn grundfirski Lavaland er búinn að útbúa glæsilega verðlaunagripi sem verða frumsýndir á verðlaunaafhendingunni á sunnudaginn.
Enn er hægt að skrá sig í Fiskiréttakeppnina en nú þegar eru komin 8 keppendur þ.a.m. er ein spænsk, móðir kvikmyndagerðarmanns sem á mynd á hátíðinni.
Hægt er að skrá sig með því að hafa samband á info@northernwavefestival.
Góða skemmtun kæru gestir og heimamenn og gleðilega hátíð!
NorthernWave
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin helgina 2. – 4. mars næstkomandi í Grundarfirði á Snæfellsnesi.
Boðið verður uppá fjölbreytt úrval stuttmynda, fiskiveislu, tónleika, fyrirlestra og fleira... (Read More...)























