English Version

Reglur um skráningu

The Northern Wave Film Festival tekur við öllum stuttmyndum og tónlistarmyndböndum sem að eru ekki lengri en 30 mínútur.

Myndirnar verða að hafa verið gerðar 1. janúar 2008 eða síðar. Hver leikstjóri getur aðeins tekið þátt með eina stuttmynd og eitt tónlistarmyndband.

Myndir sem að eru á öðru tungumáli en á ensku verða að vera sendar inn með enskum texta. Hægt er að gera undantekningu í neyð á íslenskum myndum með því að hafa samband við hátíðina info@northernwavefestival.com. Ef að myndin er valin á hátíðina verður hún þó að vera textuð á ensku.

SKILAFRESTUR OG SKRÁNING

Skilafrestur á myndum er 1. desember 2009.
Eftirfarandi efni verður að skilast með hverri mynd sem að er skráð á hátíðina.
1) DVD með stuttmyndinni eða tónlistarmyndbandinu.
2)Fyllið út eyðublaðið hér og sendið með dvd disknum.

VAL Á MYNDUM

Valnefnd hátíðarinnar mun velja myndirnar í desember 2009. Niðurstöður frá forvalsnefndinni verða tilkynntar janúar 2010 bæði á heimasíðunni og með tölvupósti.

SENDING Á MYNDUM

Skráningareyðublöð og dvd diskar verða að berast hátíðinni fyrir 1. desember 2009. Vinsamlegast sendið dvd diskinn á eftirfarandi heimilisfang:


The Northern Wave Film Festival

FÁLKAGATA 10A
107 Reykjavík

Email: info@northernwavefestival.com

Skráningareyðublað