|
  
PÓLVERJAR SIGURSÆLIR Á NORTHERN WAVE
Þriðju Northern Wave hátíðinni lauk í dag og hefur hátíðin aldrei verið betur sótt en í ár. Fullt hús var nánast allan laugardaginn en talið er að um hundrað manns hafi setið í gegnum þær átta klukkustundir af stuttmyndum sem í boði voru. Hin mikla fiskisúpuveisla var haldin á fiskmarkaði Grundarfjarðar á laugardaginn og er óhætt að segja að hún hafi slegið í gegn bæði hjá Grundfirðingum og gestum hátíðarinnar en rúmlega þrjú hundruð manns sóttu veisluna. Tólf keppendur tóku þátt í keppninni og Hrefna Rósa Sætran landsliðskokkur dæmdi. Sigurvegarar keppninar voru þrír ættliðir kvenna frá Grundarfirði þær Elsa Árnadóttir, Anna María Reynisdóttir og Laufey Lilja Ágústdóttir . Á sunnudaginn voru bestu stuttmyndirnar og tónlistarmyndbandið tilkynnt af dómnefndarmeðlimunum Kristínu Jóhannesdóttur og Ragnari Bragasyni en auk þeirra situr Hilmar Örn Hilmarsson í dómnefnd. Fiskmarkaður Íslands, G.Run hf og Soffanías Cecilsson styrktu verðlaunin að upphæð 230.000 kr. Fyrstu verðlaun fékk pólsk stuttmynd að nafi "ECHO" eftir Magnus Von Horn. Önnur verðlaun fóru til Rúnars Rúnarssonar og myndarinnar "Anna". Fyrstu verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda fóru til myndbands við lag Emiliönnu Torinni "I've heard it all before" leikstýrt af Kitty Von Sometime og Ali Taylor . Það vekur athygli að þetta er þriðja árið í röð sem að pólskir kvikmyndagerðarmenn vinna til verðlauna á Northern Wave en fyrstu tvö árin unnu pólverjar í flokki tónlistarmyndbanda. Northern Wave vill þakka gestum hátíðarinnar fyrir komuna og Grundfirðingum fyrir sína einstöku gestrisni.
DAGSKRÁIN ER KOMIN HÉR
ULTRA MEGA TECHNOBANDIÐ STEFÁN
voru að boða komu sína á Northern Wave.
Þeir spila á laugardagskvöldið á Kaffi 59.
JIBBÍ.
Landsliðskokkur dæmir í fiskisúpukeppni Northern Wave
Northern Wave hvetur Grundfirðinga til að skrá sig í fiskisúpukeppni hátíðarinnar sem að fer fram laugardaginn 6. mars næstkomandi klukkan 20.00 á fiskmarkaði Grundarfjarðar.
Þátttakendur geta óskað eftir ókeypis fiskmeti í súpuna um leið og þeir skrá sig en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á info@northernwavefestival.com eða á facebook síðu Northern Wave.
Einnig er hægt að hafa samband við Dögg í síma 7700577. Pottastærðin skiptir ekki máli en hátíðin skaffar áhöld undir súpuskamtana fyrir gestina. Gott er að koma með gashitara með sér.
Við viljum einnig hvetja alla Grundfirðinga og nærsveitunga til að mæta og fá sér súpu. Listamaðurinn Humanizer spilar tónlist með karabísku ívafi og sýnir myndverk og boðið verður uppá snafsa til að halda hita í fólki.
Í verðlaun fyrir bestu súpuna er út að borða fyrir tvo á Hótel Framnes og formaður dómnefndar er sjálfur landsliðskokkurinn Hrefna Rósa Sætran.
|