Grundarfjörður er lítið sjávarpláss á norðanverðu Snæfellsnesi, rúma tvo klukkutíma í bíl frá Reykjavík. Snæfellsnes er frægt fyrir náttúrufegurð sína og Snæfellsjökul sem að þykir gefa frá sér sérstaka orku og krafta. Snæfellsnes er einning staðurinn sem að Jules Verne byggði eina frægustu bók sína á "Ferðin til miðju jarðar". Fleiri upplýsingar um Grundarfjörð er hægt að finna á heimasíðu bæjarins www.grundarfjordur.is