English Version

Fréttatilkynning NW 2010

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í þriðja skiptið í Grundarfirði á Snæfellsnesi helgina 3.-7. mars næstkomandi. Sýnd verða 75 tónlistarmyndbönd og stuttmyndir frá 20 löndum en hátíðinni bárust í kringum150 myndir frá 40 mismundandi löndum.
Í ár voru tvenn markmið sett hjá hátíðarhöldurum, það fyrsta að hafa frítt inn á allaviðburði og hið síðara að fá Grundfirðinga til að láta í ljós sína einstöku gestrisni og taka virkan þátt í hátíðinni. Þar sem að lítið er um kvikmyndargerðarmenn í Grundafirði verður haldin fiskisúpukeppni meðal þeirra en sjálfur sóknarprestur bæjarins, Aðalsteinn Þorvaldsson, sýndi gott fordæmi og var fyrstur til að skrá
sig. Keppnin verður haldin á laugardagskvöldið (6.mars) og koma gestir hátíðarinnar til með að smakka á súpunum og greiða atkvæði um þá bestu. Boðið verður uppá ókeypis tónleika bæði kvöldin en hljómsveitirnar Bárujárn,Quadruplos, DLX ATX og DJ Unnur Andrea munu sjá um tónlistina. Hin margverðlaunaða Valdís Óskarsdóttir klippari og leikstjóri situr fyrir svörum á laugardeginum og sýnir brot úr nýjustu mynd sinni Kóngavegi 7. Ragnar Bragason er gestadómari hátíðarinnar í ár en Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld sitja með honum í dómnefnd en þau hafa verið í dómnefndinni frá upphafi.
Hátíðin hefur farið stækkandi á hverju ári en í fyrra fylltist öll gisting á svæðinu,bændagisting, farfuglaheimili Grundarfjarðar og Hótel Framnes. Vonast er til að þátttakan verði enn betri í ár.
Síðasliðin ár hefur Grundarfjörður verið fallega snævi þakinn yfir hátíðina og
móðir náttúra boðið uppá norðurljósa sýningu og vonast skipuleggjendur
Northern Wave til að hún taki uppá á því sama í ár.

 

Dögg Mósesdóttir
The Northern Wave Film Festival
www.northernwavefestival.com

info@northernwavefestival.com